Vitinn opnar eftir sumarfrí!
Núna líður að því að Vitinn opni aftur eftir sumarfrí. Verið er að gera og græa Vita herbergið á fullu og gera það reddý fyrir veturinn!
Opnunarhátíð Vitans verður á föstudagskvöldið.. þar verður mögnuð stemming og nýtt/gamalt starfsfólk Vitans á staðanum og bíður þess að hitta ykkur!
Sjáumst hress á föstudagskvöldið.
Kv. Vitaverðir
Stuttmyndakeppni
Mæting er upp í Ás, Áslandsskóla
Þann 12. maí verður lokadagur Ássins haldinn skemmtilegur.
Við ætlum að hafa stuttmyndakeppni/sýningu þann dag þar sem þið megið taka þátt og búa til skemmtilega mynd. Eftir keppnina ætlum við að hafa opið í Ásnum þar sem þið getið farið í billiard, borðtennis og bandhero. Hinum skólunum er líka boðið að taka þátt, þannig að þetta verður mjög skemmtilegt.
Um stuttmyndakeppnina:
Ekkert þema – má vera um hvað sem er.
Lengd: 5- 15 mínútur.
Best að skila myndinni á DVD diski.
Skilafrestur: Skila þarf myndinni til Ássins þann 10. maí.
Kveðja
Ásinn og Vitinn.
Footloose í Víðistaðaskóla
Við erum með miða á sýningu Víðistaðaskóla á leikritinu Footloose næsta föstudag.
Miðinn kostar 500 krónur og hægt er að versla þá hjá okkur Vitanum.
ATH: Takmarkaður miðafjöldi í boði.
Undankeppni Höfrungs
Jæja þá. Í kvöld fer fram undankeppni hæfileikakeppninnar Höfrungs hérna hjá okkur í Vitanum. Það ætti að verða óborganleg skemmtun enda eru krakkarnir okkar svo hæfileikaríkir.
Keppnin hefst í kringum 20:00.
| (1) 2 3 4 5 6 ... | 
Vitaverðir